
Jú að sjálfsögðu verður Macland með iPad 2 til sölu strax og hann berst til landsins. Þú getur forpantað þér eintak strax í dag hér á vefnum okkar.
Steve Jobs mætti á sviðið í dag og kynnti iPad 2 til leiks. Það sem helst aðgreinir upprunalega iPad og iPad 2 er :
- Myndavél, bæði að framan og aftan
- FaceTime er því orðið mögulegt
- PhotoBooth er komið
- A5 dual-core örgjörvi (í stað A4 single-core áður)
- iPad 2 kemur í hvítu og svörtu
- iPad 2 er 33% þynnri en fyrirrennari sinn. Meira að segja þynnri en iPhone 4!
- Hægt er að tengja iPad 2 við sjónvarp og það virkar eins og tölva sé tengd við sjónvarpið. Allt birtist á sjónvarpinu.
- Grafík hefur verið stórbætt. Apple segir hana vera 9 sinnum betri.
Ljóst er að iPad 2 verður gríðarlega vinsæl vara og því mikilvægt að panta hann sem fyrst viljir þú nálgast eintak fljótlega eftir að hann berst til landsins.
Hér eru nokkrar myndir af græjunni. Orð fá ekki lýst hvað hann er fagur. Við erum þó ekki alveg viss með þennan hvíta, en hann er pottþétt fallegri í persónu. (smellið á myndirnar til að sjá þær stærri)
Miklu meira af upplýsingum og myndum á Apple.com



